Svara við þeirri spurningu er hægt að finna á viðburðinum Mjólk í mat og ull í fat á Árbæjarsafni sunnudaginn 22. ágúst. Þá mun nefnilega starfsfólk safnins ganga í ýmis bæjarstörf upp á gamla mátann á milli klukkan 13:00 – 16:00 og veita gestum og gangandi innsýn í það hvernig lífið var.
Í gamla Árbænum gerir húsfreyjan upp skyr og strokkar smjör á meðan aðrir heimilismenn sulta úr rabarbara. Á baðstofuloftinu þeytir vinnukonan rokkinn og teygir lopann og ekki má gleyma lummubakstri í Hábæ. Í hugum margra hafa gömlu sveitastörfin yfir sér rómantískan blæ en til að fæða og klæða fólk þurfti mörg handtök á bænum. Sigurður Alfonsson harmóníkuleikari spilar skemmtileg og kunnuleg lög fyrir gesti á milli klukkan 14-16.
Klukkan 14 verður guðsþjónusta í litlu kirkju Árbæjarsafns. Prestur er séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson og organisti er Sigrún Steingrímsdóttir.
Í haga eru ær, lömb og hestar og um safnsvæðið vappa landnámshænur. Að vanda verður heitt á könnunni í Dillonshúsi og nýbakað góðgæti.
Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa.
Meira um Árbæjarsafn og viðburðinn hér.
